Month: April 2017
Páskar
Það virðist fátt nýtt undir sólinni í hamingjufræðum og jákvæðri sálfræði, svo nú er bara að ryfja upp einhverja góða mola til að hugsa um fyrir páskahátíðina – hamingjuráð;
- að ganga er besta lyfið
- ef þér líður illa, vertu þá góður við einhvern
- um að gera að velja að vera innan um fólk sem þú elskar og líður vel með
- er ekki tími kominn á eitthvað andlegt fóður þessa frídaga? kirkju, tónleika, göngutúr með vini, heimsækja gamla frænku……..
- staldraðu við og vertu þakklát/þakklátur, yfir hátína.. skrifa í lok hvers dags þrennt sem gekk vel/þakklát(ur) fyrir, gleðst yfir ……….
Hér er sætt myndband, um stúlku sem safnaði í dós ánægjulegum stundum yfir ákveðið tímabil – gæti verið fjölskylduverkefni um páskana? nei bara hugmynd 🙂
Gleðilega páskahátíð!
Hugarfar
Carol Dweck segir að flokka megi hvernig fólk hugsar, í tvennt. Að við hugsum annað hvort með vaxandi hugarfari (growth mindset) eða föstu hugarfari (fixed mindset)
Ef þú ert með fast hugarfar, hefur þú tilhneigingu til að telja að hæfileikar og greind, séu meðfæddir eiginleikar og þeir breytist varla. Þeir sem hafa vaxandi hugarfar telja að þó okkur séu gefnir tilteknir eiginleikar, þá sé alla vega alltaf hægt bæta og breyta, þ.e. með vinnu og áhuga, sé hægt að yfirstíga margar hindranir.
Carole Dweck heldur úti áhugaverðri síðu og þar er t.d. þetta próf – sem hjálpar þér að átta þig á því hvort hugarfarið þú hefur tamið þér:
https://mindsetonline.com/testyourmindset/step1.php
Það er farsælla fyrir þig og aðra – eykur líkur á framförum og hamingju, ef þú getur tamið þér vaxandi hugarfar:
Hugarfar skiptir máli….
Ég held að umferðarljósin
séu skotin í mér
af því þau eru alltaf að blikka mig
Ég held að bráðum stytti upp
af því nú er farið að rigna
Ég held að síldin komi bráðum aftur af því búið er að gera samninga
um sölu á henni
Ég held að gjaldheimtan láti mig í friði af því ég elska friðinn
Ég held að bráðum verði allt í lagi af því nú er allt í ólagi
Ég held að bráðum hefjist lífið af því nú er alls svo dauðlegt
Ólafur Haukur Símonarson
Kynlíf og hamingjan!
Það er meiri fylgni milli kynlífs og hamingju, en peninga og hamingju …..
Hjón verða hamingjusamari því oftar sem þau stunda kynlíf, en þó er ekki víst að hamingjan aukist meira ef þau stunda kynlíf oftar en 1x í viku…….
Kynlíf ef vel á að vera, eykur nánd, það er nándin sem skiptir sköpum varðandi hamingju
Heimild: https://www.sciencedaily.com/releases/2015/11/151118101718.htm
Fleira áhugavert:
http://www.happify.com/hd/sex-and-happiness-infographic/